Auglýsing

Hvaðan kem ég?

Það sem hefur mótað mig minn persónuleika til dagsins í dag...
Að hafa alist upp á ættaróðalinu á Melum í Hrútafirði til 16 ára aldurs, verið í Kvennaskólanum og útskrifast stúdent þaðan 1984, starfaði hjá skattrannsóknarstjóra þegar „kaffibaunamálið“ stóð yfir á árinu 1984, hjá Sölusamtökum lagmetis þegar grænfriðungar í Þýskalandi stóðu fyrir utan þýskar Aldi verslanir og mótmæltu kaupum á vörunum okkar vegna hvalveiða Íslendinga og þegar Sovétríkin hrundu og lagmetisiðnaðurinn hér á landi þar með. Hef allar götur síðan borið mikla virðingu fyrir góðum rekstri en hef að sama skapi lítið þol fyrir slæmum rekstri. Starfað hjá TVG-ZIMSEN á miklum uppgangstímum í flugfrakt og flutningsmiðlun á Íslandi, kynnst þar upphafi Bónuss sem byggði alfarið á hugmyndum ALDI verslunarkeðjunnar þýsku sem ég þekkti af fyrri viðskiptum, einnig upphafi innkaupafyrirtækisins Baugs sem síðar varð annað og meira, farið í viðskiptanám á Bifröst að nálgast miðjan aldur, helgað flutningagreininni krafta mína allt til dagsins í dag...

Mentorar mínir í lífinu voru Krummi frændi á Melum sem ég dáði og leit óendanlega upp til í æsku. Kristján Jónsson eigandi og forstjóri K. Jónssonar á Akueyri - framleiðandi af guðs náð sem rak verksmiðju sína á þann hátt að hægt var að treysta orðum hans 100% - maður sem alltaf stóð við það sem hann sagði en var svo slæmur í almannatengslum að enn þann dag í dag er nafn fyrirtækis hans eingöngu þekkt fyrir framleiðsluklúður. Þórarinn Kjartansson upphafsmaður að komu Cargolux hingað til lands og stofnandi Flugflutninga og síðar Bláfugls. Maður sem ég lærði að meta meira en aðra menn og lærði það af að það eitt skiptir máli að vera heiðarlegur og maður sjálfur í viðskiptum. Allir þessir menn eru nú dánir. Ég er þeim óendanlega þakklát fyri r það sem þeir kenndu mér og fyrir þá leiðsögn sem þeir veittu mér.

Þessi yfirferð er sett saman í þeim tilgangi að skýra bakgrunninn – forsendurnar fyrir pólitískum skoðunum mínum sem eru skýrar og hafa mótast af því að búa á Íslandi síðustu 45 árin og fylgst með pólitík síðustu 35 árin. Alin upp á heimili þar sem Framsóknarflokkurinn var flokkurinn, hef starfað í hringiðu viðskipta þar sem gengið var út frá því að allir sem ætluðu sér frama styddu Sjálfstæðisflokkinn. Lærði snemma að hafa sjálfstæðar skoðanir á pólitík óháðar flokkadráttum og hef ímugust á tilhneigingu annarra til að setja mig í ákveðinn flokk. Hef reynt að styðja tiltekinn flokk en gafst upp á því endanlega á haustmánuðum og líður satt að segja mun betur á eftir.

Undirsíðukubbur

Leit

Flokkar

Auga fyrir auga – tönn fyrir tönn

17. febrúar 2010 klukkan 23:16
Er sú hugmyndafræði sem íslenskt samfélag aðhyllist þessa dagana. Þær raddir sem heyrast eru allar á einn veg: Að við öll bíðum í ofvæni eftir því að ákveðinn nafngreindur hópur manna verði fundinn sekur svo okkur öllum hinum geti liðið vel. Réttarkerfi eða þrískipting ríkisvalds eru léttvæg fundin og skipta engu máli.

Látið er að því liggja að við bíðum öll í ofvæni eftir útkomu rannsóknarskýrslu til að segja okkur hverjir séu sökudólgar að því sem hér gerðist.

Hatur og hefnd - á það að vera leið okkar íslensks almennings til réttlátara og betra samfélags? Er það sá lærdómur sem við viljum draga af því sem hér gerðist? Eru þetta þau gildi sem við viljum byggja nýtt samfélag á?

Ég tilkynni hér með að ég er Íslendingur. Er sem slík fulltrúi þess hóps sem kallast íslensk þjóð. Ég lýsi því hér með yfir að ég bíð ekki eftir því að rannsóknarskýrslan komi út og því síður bíð ég í ofvæni eftir því að sjá valinn hóp nafngreindra einstaklinga á bak við lás og slá. Ég frábið mér allar yfirlýsingar kjörinna fulltrúa í þá veru.

Umfram allt geri ég þá kröfu til kjörinna fulltrúa að þeir vita valdmörk sín. Ég geri þá kröfu til kjörinna fulltrúa að þeir láti réttarkerfinu eftir að sjá um rannsókn, sekt og sýknu manna og gefi því þann tíma sem þarf til þess.

Leiðin til trausts í samfélagi okkar er sú að leyfa því sem gera þarf að taka þann tíma sem það þarf. Það er engin flýtileiði til að sannleikanum. Leikreglur verður að virða og enginn skal sekur fyrr en sekt hans er sönnuð. Það er grundvallaratriði sem engan afslátt má gefa á.

Að næra hatrið hefur aldrei leitt til góðs. Að benda á sökudólga felur ekki í sér neinar lausnir. Að veita aðhald og vera gagnrýnin á allt sem er er hollt og gott hverju samfélagi.

Enginn nema við - íslenskur almenningur - stjórnar því í hvaða átt íslenskt samfélag þróast.

Signý Sigurðardóttir

Skrifa athugasemd