Hvaðan kem ég?
Það sem hefur mótað mig minn persónuleika til dagsins í dag...
Að hafa alist upp á ættaróðalinu á Melum í Hrútafirði til 16 ára aldurs, verið í Kvennaskólanum og útskrifast stúdent þaðan 1984, starfaði hjá skattrannsóknarstjóra þegar „kaffibaunamálið“ stóð yfir á árinu 1984, hjá Sölusamtökum lagmetis þegar grænfriðungar í Þýskalandi stóðu fyrir utan þýskar Aldi verslanir og mótmæltu kaupum á vörunum okkar vegna hvalveiða Íslendinga og þegar Sovétríkin hrundu og lagmetisiðnaðurinn hér á landi þar með. Hef allar götur síðan borið mikla virðingu fyrir góðum rekstri en hef að sama skapi lítið þol fyrir slæmum rekstri. Starfað hjá TVG-ZIMSEN á miklum uppgangstímum í flugfrakt og flutningsmiðlun á Íslandi, kynnst þar upphafi Bónuss sem byggði alfarið á hugmyndum ALDI verslunarkeðjunnar þýsku sem ég þekkti af fyrri viðskiptum, einnig upphafi innkaupafyrirtækisins Baugs sem síðar varð annað og meira, farið í viðskiptanám á Bifröst að nálgast miðjan aldur, helgað flutningagreininni krafta mína allt til dagsins í dag...
Mentorar mínir í lífinu voru Krummi frændi á Melum sem ég dáði og leit óendanlega upp til í æsku. Kristján Jónsson eigandi og forstjóri K. Jónssonar á Akueyri - framleiðandi af guðs náð sem rak verksmiðju sína á þann hátt að hægt var að treysta orðum hans 100% - maður sem alltaf stóð við það sem hann sagði en var svo slæmur í almannatengslum að enn þann dag í dag er nafn fyrirtækis hans eingöngu þekkt fyrir framleiðsluklúður. Þórarinn Kjartansson upphafsmaður að komu Cargolux hingað til lands og stofnandi Flugflutninga og síðar Bláfugls. Maður sem ég lærði að meta meira en aðra menn og lærði það af að það eitt skiptir máli að vera heiðarlegur og maður sjálfur í viðskiptum. Allir þessir menn eru nú dánir. Ég er þeim óendanlega þakklát fyri r það sem þeir kenndu mér og fyrir þá leiðsögn sem þeir veittu mér.
Þessi yfirferð er sett saman í þeim tilgangi að skýra bakgrunninn – forsendurnar fyrir pólitískum skoðunum mínum sem eru skýrar og hafa mótast af því að búa á Íslandi síðustu 45 árin og fylgst með pólitík síðustu 35 árin. Alin upp á heimili þar sem Framsóknarflokkurinn var flokkurinn, hef starfað í hringiðu viðskipta þar sem gengið var út frá því að allir sem ætluðu sér frama styddu Sjálfstæðisflokkinn. Lærði snemma að hafa sjálfstæðar skoðanir á pólitík óháðar flokkadráttum og hef ímugust á tilhneigingu annarra til að setja mig í ákveðinn flokk. Hef reynt að styðja tiltekinn flokk en gafst upp á því endanlega á haustmánuðum og líður satt að segja mun betur á eftir.
RSS veitur
30. ágúst 2010 klukkan 21:21
Að það skuli ekki vera nóg það sem hér hefur gerst síðustu tvö ár til að menn læri að svona gengur þetta umhverfi ekki áfram lengur er fullkomlega ófært. Icesave og tryggingasjóður innistæðueigenda ættu að vega vera nægilegur lærdómur til að menn átti sig á því að EES er ekki valkostur. Annað hvort er það full aðild að ESB eða ekki. EES er skammtímasamningur og algjörlega óásættanlegur til framtíðar fyrir þjóð með snefil af sjálfsvirðingu....
Nánar
Signý Sigurðardóttir
29. ágúst 2010 klukkan 19:53
Við getum ekki kennt „útrásarvíkingum" um hækkanir Orkuveitunnar. Við getum ekki kennt „útrásarvíkingum" um glórulausar hækkanir á verði hlutabréfa stórs hluta íslenskra fyrirtækja í Kauphöll Íslands sem endaði með því að þau voru tekin yfir af bönkunum....
Nánar
Signý Sigurðardóttir
24. ágúst 2010 klukkan 20:36
Á sama tíma og þetta er staðan hæðast Íslendingar – karlmenn í Sjálfstæðisflokknum fremstir í flokki að ESB.
Ég verð að segja að heldur fyndist mér meiri manndómsbragur á því að láta vera að hæðast að öðrum með þessa stöðu í farteskinu. Forgangsatriði númer eitt fyrir almenning á Íslandi er í dag að tryggja með öllum ráðum fulla aðild Íslands að Evrópusambandinu. Það er rétta leiðin – eina rétta leiðin – til að tryggja að hér verði einhvern tíma í framtíðinni eðlilegt viðskiptaumhverfi þar sem íslenskum fjárfestum og atvinnurekendum er veitt það aðhald sem þeir þurfa....
Nánar
Signý Sigurðardóttir
18. júní 2010 klukkan 19:06
Það var augljóst í upphafi þessa áratugar að íslensk stjórnmál urðu að taka stefnu á nýjan gjaldmiðil. Íslensk stjórnmál kusu að gera það ekki. Kusu sjálfsblekkingu og afneitun að ekki sé talað um dramb og hroka. Íslensk stjórnmál kusu að horfa algjörlega framhjá þeim fáránleika sem örgjaldmiðill skapaði í alþjóðlegum viðskiptaheimi og stjórnvöld sem áttu að vera ábyrg gagnvart almenningi ákváðu að vera óábyrg....
Nánar
Signý Sigurðardóttir
04. júní 2010 klukkan 18:16
Þrátt fyrir það sem gerst hefur síðan ætlar þessi sami hópur ekkert að læra. Hann ætlar ekki að gera neinar kröfur á sinn flokk um að breyta stefnunni. Hann er aftur á móti að sannfæra okkur öll - allan almenning á Íslandi - um að enginn geti stjórnað þessu landi annar en Sjálfstæðisflokkurinn! Sjálfstæðisflokkurinn með óbreytta stefnu!...
Nánar
Signý Sigurðardóttir
27. maí 2010 klukkan 20:55
Enn höfum við ekkert lært. Við fylgjum í blindni einstaklingum af karlkyni hægri, vinstri. Þeirra er sannleikurinn. Ég virði heiðarleika mikils. Ég virði einlægni mikils. Hræsni virði ég ekki....
Nánar
Signý Sigurðardóttir
19. maí 2010 klukkan 22:57
Ég veit ekki í hverju það felst sem við Íslendingar teljum okkur svona miklu fremri öðrum Evrópuþjóðum. Eru það íslensk stjórnmál sem eru svona langtum betri en evrópsk? Er það íslenskt stjórnkerfi sem er svona miklu fremra evrópsku stjórnkerfi? Er það íslenska hagkerfið sem er svona miklu fremra evrópsku hagkerfi? Hagsveiflurnar kannski?...
Nánar
Signý Sigurðardóttir
07. maí 2010 klukkan 23:26
Grein birt vegna brotthvarfs Friðriks Páls Jónssonar í dag. Man ekki hvenær hún er skrifuð en ef skjalasafnið er rétt er hún skrifuð í nóvember 2003. Friðrik Páll Jónsson sem ritstjóri Spegilsins og brotthvarf hans þaðan er frétt sem skiptir mig máli sem íslenskan þjóðfélagsþegn. Meira máli en margt annað. Það að Ríkisúvarpið skuli meðhöndla fréttamenn sem hafa reynslu með þeim hætti sem það hefur gert síðustu mánuði er ekki léttvægt. Það er þungbært og það skiptir máli. Meira máli en svo margt, margt annað. Birt í dag af því tilefni....
Nánar
Signý Sigurðardóttir
03. maí 2010 klukkan 22:55
Gerum við það með því að tala niður laun allra? Gerum við það með því að takast á við einstakar persónur og laun þeirra? Eins og gert var í viðtali við seðlabankastjórann áðan? Er þetta aðferðin til að tryggja réttlæti íslensks samfélags?...
Nánar
Signý Sigurðardóttir
27. apríl 2010 klukkan 18:41
Einstaklingarnir sem tóku þátt í prófkjörum - fyrir okkur - eiga það skilið af okkur að við virðum þá fyrir það. Leikreglum á ekki að breyta eftir á. Slíkt samfélag er fyrst og síðast siðlaust samfélag - bananalýðveldi....
Nánar
Signý Sigurðardóttir
26. apríl 2010 klukkan 22:29
Ljóst er á þessum pistli að sitt sýnist hverjum um sögu fortíðarinnar. Guðmundur Andri Thorsson hefur búið í einhverju allt öðru samfélagi en ég kannast við og tel ég mig þó hafa búið á Íslandi eins og hann. Um eitt erum við sammála - að óttalegt basl hafi verið á mörgum eftir áralanga efnahagsóreiðu....
Nánar
Signý Sigurðardóttir
18. apríl 2010 klukkan 22:20
Það er virðingarvert og skal ekki gert lítið úr því að einstakir stjórnmálamenn gangist við ábyrgð sinni. Það eitt og sér mun samt ekki breyta neinu um Ísland framtíðarinnar. Ef við viljum í raun og sann nýtt Ísland -þurfum við að láta af meðvirkninni með Sjálfstæðisflokknum og gera kröfur til þess flokks um uppgjör....
Nánar
Signý Sigurðardóttir