Auglýsing

Hvaðan kem ég?

Það sem hefur mótað mig minn persónuleika til dagsins í dag...
Að hafa alist upp á ættaróðalinu á Melum í Hrútafirði til 16 ára aldurs, verið í Kvennaskólanum og útskrifast stúdent þaðan 1984, starfaði hjá skattrannsóknarstjóra þegar „kaffibaunamálið“ stóð yfir á árinu 1984, hjá Sölusamtökum lagmetis þegar grænfriðungar í Þýskalandi stóðu fyrir utan þýskar Aldi verslanir og mótmæltu kaupum á vörunum okkar vegna hvalveiða Íslendinga og þegar Sovétríkin hrundu og lagmetisiðnaðurinn hér á landi þar með. Hef allar götur síðan borið mikla virðingu fyrir góðum rekstri en hef að sama skapi lítið þol fyrir slæmum rekstri. Starfað hjá TVG-ZIMSEN á miklum uppgangstímum í flugfrakt og flutningsmiðlun á Íslandi, kynnst þar upphafi Bónuss sem byggði alfarið á hugmyndum ALDI verslunarkeðjunnar þýsku sem ég þekkti af fyrri viðskiptum, einnig upphafi innkaupafyrirtækisins Baugs sem síðar varð annað og meira, farið í viðskiptanám á Bifröst að nálgast miðjan aldur, helgað flutningagreininni krafta mína allt til dagsins í dag...

Mentorar mínir í lífinu voru Krummi frændi á Melum sem ég dáði og leit óendanlega upp til í æsku. Kristján Jónsson eigandi og forstjóri K. Jónssonar á Akueyri - framleiðandi af guðs náð sem rak verksmiðju sína á þann hátt að hægt var að treysta orðum hans 100% - maður sem alltaf stóð við það sem hann sagði en var svo slæmur í almannatengslum að enn þann dag í dag er nafn fyrirtækis hans eingöngu þekkt fyrir framleiðsluklúður. Þórarinn Kjartansson upphafsmaður að komu Cargolux hingað til lands og stofnandi Flugflutninga og síðar Bláfugls. Maður sem ég lærði að meta meira en aðra menn og lærði það af að það eitt skiptir máli að vera heiðarlegur og maður sjálfur í viðskiptum. Allir þessir menn eru nú dánir. Ég er þeim óendanlega þakklát fyri r það sem þeir kenndu mér og fyrir þá leiðsögn sem þeir veittu mér.

Þessi yfirferð er sett saman í þeim tilgangi að skýra bakgrunninn – forsendurnar fyrir pólitískum skoðunum mínum sem eru skýrar og hafa mótast af því að búa á Íslandi síðustu 45 árin og fylgst með pólitík síðustu 35 árin. Alin upp á heimili þar sem Framsóknarflokkurinn var flokkurinn, hef starfað í hringiðu viðskipta þar sem gengið var út frá því að allir sem ætluðu sér frama styddu Sjálfstæðisflokkinn. Lærði snemma að hafa sjálfstæðar skoðanir á pólitík óháðar flokkadráttum og hef ímugust á tilhneigingu annarra til að setja mig í ákveðinn flokk. Hef reynt að styðja tiltekinn flokk en gafst upp á því endanlega á haustmánuðum og líður satt að segja mun betur á eftir.

Undirsíðukubbur

Leit

Flokkar

Álögum áróðursins aflétt

23. janúar 2012 klukkan 23:12
Áramótaskaupið var ekkert grín fyrir mér - það var fullkomin alvara og óendanlega gott að fá útrás fyrir uppsafnaðar innbyrgðar tilfinningar með því að hlæja að öllu saman.... Nánar
Signý Sigurðardóttir
Engin athugasemd

Hugleiðingar um lýðræði

22. janúar 2012 klukkan 13:26
Lýðræði byggir ekki á því að þingmenn taki við ráðherraumboði til að vinna gegn stefnu ríkisstjórnar. Það er eins ólýðræðislegt og hugsast getur. Slík framkoma eru svik.... Nánar
Signý Sigurðardóttir
Engin athugasemd

Unglingar og fjölmiðlar - ritgerð höfundar úr uppeldisfræði í Kvennó á árinunum 1982 - 1984

08. október 2011 klukkan 22:57
Ritgerð SS í uppeldisfræði í Kvennaskólanum í Reykjavík einhvern tíma á árunum 1982 – 1984, þegar höfundur var í kringum tvítugt og sjóvarpað var á Íslandi 6 daga vikunnar 11 mánuði á ári. Finnst gaman að eiga þessa heimild um hugsanagang ungrar sveitastúlku í Kvennaskólanum í Reykjavík á þessum tíma. Heimild um hugleiðingar hennar um áhrif fjölmiðla á líf ungs fólks.... Nánar
Signý Sigurðardóttir
Engin athugasemd

Dæmisaga af íslensku samhengi hlutanna

05. október 2011 klukkan 18:53
Ég og bankastjórinn sátum fyrir 23 árum sitt hvoru megin við samaningaborð og vorum fulltrúar síns hvors samningaaðilans - enda störfuðum við lengi í sömu atvinnugrein. Síðan eru liðin mörg ár og ég orðin miðaldra kona - enn í sömu atvinnugrein - hann orðinn miðaldra karl og stjórnandi í fjármálageiranum.... Nánar
Signý Sigurðardóttir
Engin athugasemd

Þar liggja mörkin

09. ágúst 2011 klukkan 23:42
Það er stundum gott að láta minna sig á. Ég upplifði það mjög sterkt á dögunum þegar ég las bókina „Lofuð“ eftir Elisabeth Gilbert. Lestur hennar eins og leysti mig úr fjötrum. Ég drakk í mig hugmyndir höfundar og naut þess ómælt að láta hana minna mig á. Minna mig á af hverju ég er sú sem ég er og af hverju ég er ósammála íhaldssömum hægri mönnum heimsins.... Nánar
Signý Sigurðardóttir
1 athugasemd

Ég opinberaði . . .

04. júlí 2011 klukkan 23:30
Að upplifa það beinlínis - hlusta á það dag eftir dag eftir dag - að enginn geti stjórnað þessu landi annar en Sjálfstæðisflokkurinn. Að allt sé hér í volæði vegna þess eins að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki við völd viðurkenni ég að ég tek persónulega. Að lesa blaðagreinar forystumanna íslensks atvinnulífs þar sem einungis vantar í fyrirsögnina - að það eina sem sé að í íslensku samfélagi sé að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki við völd - er erfitt að kyngja.... Nánar
Signý Sigurðardóttir
3 athugasemdir

Lögmálið um hækkun verðlags

03. maí 2011 klukkan 22:44
Það er eitt að sætta sig við hækkanir opinberra fyrirtækja og borgarsjóðs. Það er annað að sætta sig við virðingarleysi og að vera meðhöndlaður eins og slíkir hlutir sem hér er fjallað um komi manni ekki við og séu sjálfsagðir.... Nánar
Signý Sigurðardóttir
1 athugasemd

Ég er Evrópusambandssinni

13. apríl 2011 klukkan 20:08
Ég vil að Ísland verði aðili að Evrópusambandinu. Ég vil það af menningarlegum ástæðum. Ég vil það af pólitískum ástæðum. Ég vil það af efnahagslegum ástæðum. Og ég vil það fyrst og síðast af persónulegum ástæðum.... Nánar
Signý Sigurðardóttir
Engin athugasemd

Hvernig get ég verið svona viss?

07. apríl 2011 klukkan 22:40
Kosningin á laugardaginn snýst um heiður og sæmd. Hún snýst um að íslenska þjóðin sýni ábyrgð. Að íslenska þjóðin virði grundvallarlögmálið um „að það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skulið þér og þeim gjöra".... Nánar
Signý Sigurðardóttir
1 athugasemd

Valið stendur um dramb eða auðmýkt

05. apríl 2011 klukkan 22:52
Á laugardaginn verður gengið til kosninga á Íslandi. Niðurstaða þessara kosninga skiptir mig verulega miklu máli. Kosningarnar á laugardaginn eru fyrir mér mælikvarði á það hvers konar samfélag við ætlum gefa út að við séum. Kosningarnar snúast ekki um lögfræði og því síður um peninga.... Nánar
Signý Sigurðardóttir
Engin athugasemd